Mat á fölsun skjals
from €35.00

Að skera úr um skjalafals krefst bæði tæknilegra sönnunargagna um uppruna skjalsins og lögfræðilegs mats á því hvort háttsemin sé refsiverð. Samkvæmt 155. gr. almennra hegningarlaga varðar það allt að 8 ára fangelsi að nota fölsuð skjöl (eða stafræn gögn) til að blekkja í lögskiptum. Viðurlög þyngjast ef um er að ræða opinber skjöl, viðskiptabréf eða erfðaskrár. Skjalafals tengist oft öðrum auðgunarbrotum, eins og fjársvikum.

Fyrir dómi geta aðilar lagt fram matsskýrslur sérfræðinga, en það er alltaf dómari sem metur sönnunargildi þeirra heildstætt ásamt öðrum gögnum málsins. Dómarinn ákvarðar endanlega hvort saknæm blekking hafi átt sér stað í skilningi laganna. Athugið að það mat sem fæst hér er aflað utanréttar og þó svo að hægt sé að leggja það fyrir dóm nýtur það takmarkaðs sönnunargildi, af þeim sökum. Ef ætlunin er að sanna í dómsmáli að tiltekið skjal sé falsað myndi það mat sem fæst hér frekar nýtast til ákvörðunar um það hvort farið sé fram á dómskvaðningu matsmanns enda getur mikill kostnaður hlotist af því og ber matsbeiðandi kostnað hennar og þá áhættu að skjalið nýtist ekki til sönnunar.

Bæði er hægt að fá mat sérfræðings (sem tekur allt að 7 daga) eða sjálfvirka yfirferð (sem tekur allt að 7 klst). Þegar kerfið er 100% sjálfvirkt er um tæknilega frumgreining á gögnum skjalsins, en ekki lögfræðilegt mat, þar sem sjálfvirk kerfi geta stundum gefið falskar viðvaranir (e. false positives). Í því tilviki skal senda skjal og útskýringu á judica@judica.is. Málið verður yfirfarið og eftir atvikum verða kaup endurgreidd. JUDICA ábyrgist hins vegar ekki frekara tjón sem þetta kann að hafa í för með sér. Til þess að útiloka allan vafa er mælt með að fá sérfræðing til að yfirfara skjal.